Forsíða
Einleikhúsið
Sýningar
Umsagnir
Listamenn
Forsíða
Frumsýnum Óskina í Reykjavík
Barnaleikritið vinsæla, Óskin, verður frumsýnd í  Reykjavík, kl. 14. sunnudaginn 12. október í Þjóðminjasafni Íslands.
Ókeypis aðgangur!
 
Óskin - barnaævintýrasýning

oskin-logo-vef.jpgBarnaleiksýningin ÓSKIN verður frumsýnd á Kópavogsdögum 3. maí næstkomandi.

ÓSKIN er ævintýri með frumsömdum söngvum fyrir yngstu áhorfendurna. Hún er farandsýning fyrir leikskóla og yngsta bekk grunnskóla og tekur um það bil 45 mínútur í flutningi.

ÓSKIN fjallar um vináttu lítillar stúlku og snjókalls. Hún heitir Þrúður og vill vera trúður, hann heitir Snjólfur snjókall og þarf að komast upp í fjall – því hann er að bráðna.  Á leiðinni upp í fjall lenda þau í ýmsum ævintýrum. Á vegi þeirra verða meðal annars úlfurinn ógurlegi, Grýla skítafýla og bangsi bestaskinn sem huggar við kinn.

Leikarar eru tveir og öll tónlist er flutt af þeim í sýningunni.
Höfundar eru Sigrún Sól Ólafsdóttir og Pálmi Sigurhjartarson.
Sigrún leikstýrir einnig verkinu og Pálmi semur alla tónlistina.
Leikarar eru Ásta Sighvats Ólafsdóttir og Sigurður Eyberg Jóhannesson.
Myrra Leifsdóttir hannar búninga, leikmynd og grafík.
Framleiðandi sýningarinnar er Einleikhúsið.

Sýningin er unnin með stuðningi Kópavogsbæjar og Menntamálaráðuneytis.

Öll umgjörð sýningarinnar er unnin þannig að auðvelt er að sýna hana svo til hvar sem er, án mikils umstangs. Einnig er tilvalið að sýna brot úr verkinu á ólíkum uppákomum. Tónlistin úr sýningunni hefur verið gefin út á rafrænu formi og má nálgast hana á  tónlist.is . Einnig hefur tónlist úr eldri verkefnum Einleikhússins verið gefin út þar af þessu tilefni.

Frumsýning er sem áður sagði laugardaginn 3. maí næstkomandi í Bókasafni Kópavogs, í sal sem kallast Kórinn. Hefst sýningin kl. 13. og er ókeypis aðgangur og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. Önnur sýning verður á sama stað sunnudaginn 4. maí kl. 13.00.  Kópavogsbær hefur keypt upp 15 sýningar sem sýndar verða á leikskólum víða um bæinn vikuna 5. – 9. maí. Hver leikskóli fær geisladiska með tónlistinni að gjöf.

Allar nánari upplýsingar:

Sigrún Sól Ólafsdóttir
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
GSM: 899 6750
 
Óskin lagatextar

Hér er hægt að sjá alla textana úr Óskinni:

  • Óskalagið
  • Úlfalagið
  • Snjólagið
  • Ferðalagið
  • Ólagið
  • Grýlulagið 
Lesa meira...
 
Myndir frá Óskinni

1.
oskin-bill.jpg
2.
oskin-gryla.jpg
3.
oskin-hraeddur-snjokall.jpg
4.
oskin-hus.jpg
5.
oskin-leikfong.jpg
6.
oskin-snjokll-ad-spila.jpg
7.
oskin-trudur-i-leik.jpg
8.
oskin-trudur-med-glugga.jpg
9.
oskin-ulfur.jpg

 Ljósmyndir eftir Leif Rögnvaldsson.

 
Myndir frá æfingu Óskarinnar
1.
oskin-2.jpg
2.
oskin-ferdalagid.jpg
3.
oskin-gryla.jpg
4.
oskin-snjokall-trudur.jpg
5.
oskin-trudur-gluggi.jpg
6.
oskin-ulfur.jpg
 
©2006 Hringbrot